Úr frétt DV í dag:
„DV spurði Pál [Magnússon, útvarpsstjóra] einnig um bílinn sem hann hefur haft sem launahlunnindi í nærri þrjú ár og hvenær honum yrði skilað. Páll ætlar að skila bílnum á næstu dögum eða vikum en segir óljóst hvernig samningar takist um skil bílsins.“
Hversu flókið getur verið að skila einum jeppa? Hvaða samningar þurfa að takast um skil bílsins?
Nú er bíllinn væntanlega á álíka gáfulegum kjörum og Páll sjálfur, með 12 mánaða uppsagnarfrest. En á meðan Páll skilar honum ekki þá gerist fátt. Hann klappar sér samt á bakið fyrir að hafa skilað honum, eða réttara sagt, fyrir að hafa sagt ætla að skila honum, einhvern tímann. Það getur auðvitað tekið margar vikur.