Útgáfa og útvarp

Útgáfa

Eftir mig liggja fimm útgefnar bækur.

Þú cover
Þú

Ljóðabók sem kom út árið 2023. Útgefandi: Veröld. Bókin er fáanleg í helstu bókabúðum, í vefverslun Bjarts & Veraldar og á bókasöfnum.

Hjartað ræður
Hjartað ræður för – Guðrún Ögmundsdóttir

Ævisaga Guðrúnar Ögmundsdóttir sem kom út árið 2010. Útgefandi: Bjartur. Bókin er m.a. fáanleg í vefverslun Bjarts og Forlagsins og á bókasöfnum.

slaedusviptingar
Slæðusviptingar: raddir íranskra kvenna

Bók sem kom út árið 2008 og byggði á meistararitgerð minni sem ég skilaði sama ár undir yfirskriftinni Kynfast kerfi: rými kvenna í írönsku samfélagi. Bókin er ófáanleg nema hjá höfundi og á bókasöfnum.

kapa_halla_leitinadfe
Leitin að Fjalla-Eyvindi

Ljóðabók sem kom út árið 2007. Útgefandi: Nykur. Bókin fæst hjá höfundi og er einnig til á bókasöfnum.

Tvo_Blaber
Tvö jarðarber

Ljóðabók sem kom út árið 2013. Hún er fáanleg hjá höfundi og er einnig til á bókasöfnum.

Útvarp

Ég hef unnið útvarpsefni fyrir bæði Ríkisútvarpið og Nashville Public Radio.


Nashville Public Radio

Þegar ég bjó í Nashville í Bandaríkjunum frá 2013–2014 reyndi ég fyrir mér í gerð útvarpsefnis í anda NPR. Ég vann þrjú innslög fyrir útvarpsstöðina. Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu Nashville Public Radio


Stofnun breska kvennalistans

Tveir þættir sem ég vann fyrir Ríkisútvarpið árið 2018. Í þeim segi ég frá reynslu minni af af því að taka þátt í stofnun kvennaframboðs í Bretlandi. Fjallað er um kúvendingarnar í breskri pólítík og tilraunir the Women’s Equality Party til að koma réttindum kvenna á hina pólitísku dagskrá í erfiðu árferði.


Hraustir sveinar og horskar meyjar

Fjórir þættir sem ég og Stefán Pálsson unnum fyrir Ríkisútvarpið árið 2010 í tengslum við heimsmeistaramótið í fótbolta. Þættirnir fjölluðu um fótbolta í menningarlegu, pólitísku og samfélagslegu ljósi.


Umhverfis jörðina

Tíu þættir sem ég vann fyrir Ríkisútvarpið árið 2008 þar sem fjallað var um eitt land í hverjum þætti. Rætt var við fólk sem var frá eða hafði ferðast um viðkomandi land og aðra sem höfðu sérþekkingu á landinu eða svæðinu. Þættirnir voru með svipuðu sniði og þættir sem ég vann fyrir sjónvarpsstöðina NFS undir yfirskriftinni Þetta fólk.

Leave a reply