Morgunblaðið heldur ekki vatni yfir því að í Svíþjóð hafi sex ungir jafnaðarmenn skrifað opið bréf í Dagens Nyheter til að hvetja skoðanasystkini sín til að láta af andstöðu við einkarekna grunnskóla. Þetta gaf tilefni til ítarlegrar fréttaskýringar og í framhaldinu Staksteinaskrifa þar sem Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, er dreginn inn í þessa umræðu og hann spurður hvort honum finnist sænski jafnaðarmannaflokkurinn hafa orðið græðgivæðingunni að bráð. (Fyrir þá sem ekki vita er kannski rétt að taka fram að Samfylkingin er systurflokkur sænska jafnaðarmannaflokksins, en ekki Vinstri græn).
Rökhugsunin í kolli Staksteinahöfundar hefur væntanlega verið eitthvað á þessa leið:
1) Vinstra sinnað fólk er á móti einkaskólum
2) Vinstra sinnað fólk er allt eins
3) Sex ungir jafnaðarmenn tala á skjön við flokkinn sinn
4) Það er fréttnæmt þegar ungir jafnaðarmenn skrifa greinar í blöð í Svíþjóð
5) Þar af leiðandi hlýtur sænski jafnaðarmannaflokkurinn að aðhyllast einkaskóla
6) Ögmundur er vinstri sinnaður maður
7) Ögmundur verður að svara fyrir þessar skoðanir ungmennanna
Á sama tíma og Morgunblaðið hleypur á eftir greinaskrifum ungra, sænskra jafnaðarmanna berast önnur tíðindi frá Danmörku. Þar hefur nú sprottið upp umræða um einkarekin sjúkrahús, sem hafa fengið alltof háar greiðslur fyrir að meðhöndla sjúklinga og að sjálfsögðu eru það skattborgarar sem bera kostnaðinn. Þetta hlýtur að vekja athygli Staksteinahöfundar, ekki síst á krepputímum, eða hvað?