SA og gömlu lyfin

Birtist í Morgunblaðinu 5. september 2020

Á dögunum var sagt frá því í fréttum að „gömul lyf“ hafi reynst vel í meðferð við Covid-19. Ekki er ólíklegt að Samtök atvinnulífsins hafi fundið sinn innblástur í þeim tíðindum þegar þau settu saman umsögn sína um breytingar á fjármálastefnu stjórnvalda. Umsögnin er uppfyll af gömlum úrræðum, en ekki raunhæfum hugmyndum, til að takast á við viðfangsefni samtímans. Vandinn er sá að ekkert bendir til þess að gömul lyf virki gegn efnahagslegum afleiðingum Covid, jafnvel þótt þau nái að vinna gegn heilsufarslegum einkennum sjúkdómsins á meðan beðið er eftir bóluefni.

Meðal þess sem SA leggur nú fram í opinberri umræðu er að Covid-kreppan kalli á skattalækkanir til fjármagnseigenda og fyrirtækja, að nú sé rétti tíminn til að saxa niður hið opinbera (sem á nýmáli er kallað „tiltekt í opinberum rekstri”) og að hærri atvinnuleysistryggingar verði aðeins til þess að fólk nenni ekki að vinna. Með öðrum orðum þá vill SA „nýta“ kreppuna til að hanna samfélagið eftir þröngri hugmyndafræðilegri línu.

Hugmyndafræðin sem SA vill styrkja í sessi er ekki aðeins full af mótsögnum heldur hefur hún valdið ómældum skaða á hagkerfum og samfélögum um allan heim. Þannig að álitamál er hvort þessi lyf hafi nokkurn tímann virkað. Þau ríki sem fylgdu þeirri línu í kjölfar fjármálahrunsins að skera stórlega niður við hið opinbera, ívilna fjármagnseigendum og veikja öryggisnet samfélagsins eru þau ríki sem koma hvað verst út úr Covid, bæði heilsufarslega og efnahagslega. Þær alþjóðstofnanir sem hafa fremur þjónað fjármagni en fólki eru í hrönnum að snúa frá þessari línu. Nú hvetur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til ríkisútgjalda í þágu velferðar og þess að verja afkomu fólks. OECD talar í sömu átt og meira að segja hin árlega samkoma hinna ríku og vel megandi í Davos er farin að kalla eftir aðgerðum gegn ójöfnuði.

En einhvern veginn virðist þessi stefnubreyting á alþjóðavettvangi ekki eiga upp á pallborðið hjá SA, þrátt fyrir að vera studd bæði rannsóknum og reynslu. Þvert á móti hefur SA forherst í gömlu lyfjaræðinni, sem vinnur bæði gegn almannahag og þörfum stórs hluta atvinnulífsins.  

Þær ákvarðanir sem nú eru teknar í ríkisfjármálum munu hafa mikil áhrif til framtíðar. Samfélagsskipulag næstu ára og jafnvel áratuga mun ráðast af þeim ákvörðunum. Hlutverk stjórnvalda á að vera að gæta almannahagsmuna á slíkum tímum sem á öllum tímum. Ætli ríkisstjórnin að standa sig í því hlutverki væri ráð að lækka í heyrnatækinu þegar SA hefur upp raust sína en hækka í því þegar samtök launafólks og almannasamtök koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Prev PostKomum sterkari út úr kreppunni
Next PostÞyngdarlögmál Þorsteins Víglundssonar