Ný vefsíða

Árið 2003 byrjaði ég að blogga. Þá datt ég í dagbókarstílinn sem einkenndi mörg blogg á fyrstu árunum. Pistlarnir fjölluðu um mitt daglega líf og á þeim tíma áttu fótboltaæfingar og Kennaraháskólanámið hug minn allan. Smám saman breyttist bloggið og eftir að ég færði mig yfir á Kaninkuna fóru skrif mín að litast af þeirri samfélagsrýni sem átti sér stað á þeim slóðum. Á svipuðum tíma byrjaði ég sem blaðamaður á Mogganum og þá varð ekki aftur snúið; skrif urðu að ástríðu og um leið lifibrauði.

Í mörg ár hélt ég úti bloggi á kaninkunni. Þar skrifaði ég allar mínar ferðasögur og hugrenningar. Eftir að ég loks fastréð mig á Moggann og varð þingfréttaritari þreyttist ég á að halda úti bloggi og minnkaði skrifin smám saman, enda dagleg skriffinnska orðin ansi mikil. Vissulega hafði það líka áhrif að tjáningarfrelsi þingfréttaritara er ekki algert og einhvern veginn leiddist mér að geta ekki sagt allt sem mér datt í hug.

En nú er ég hætt á Mogganum. Málfrelsinu eru engar skorður settar og að sama skapi sakna ég þess að skrifa.

Á þessari vefsíðu hef ég safnað saman mínum helstu greinum og ræðum og ætlunin er að halda úti a.m.k. nokkuð reglulegu bloggi. Að auki er hér lítill dálkur sem verður nýttur undir almennt nöldur. Lesendur geta sent mér skeytií gegnum síðuna en síðan sjálf er ætluð undir mín skrif.

Bestu þakkir fær Guðný Þorsteinsdóttir sem setti herlegheitin upp. Og þar með opnar vefsíðan formlega.

Prev PostHeilbrigðismál: Sykurskattur
Next PostHeyrnartól á flugi