Hefst einkavæðingasöngur AGS að nýju?

Árið 2001 gaf Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn íslenska ríkinu ráð til að lækka skuldir hins opinbera. Þá hafði sjóðurinn vissulega hamrað stöðugt á því að einkavæða ætti bankana og Símann en til viðbótar var svo lagt til að líta ætti á fleiri svið í þeim tilgangi að lækka skuldir ríkisins –  einkum heilbrigðismál og menntun.

Ef þetta voru ráðin árið 2001, hver verða þá ráðin núna þegar Ísland tekur á sig gríðarlegar byrðar? Varla þarf mikla spádómsgáfu til að ætla að áður en langt um líður verði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn farinn að þrýsta á um einkavæðingu íslenska velferðakerfisins og menntakerfisins, enda hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að efasemdir séu uppi um hugmyndafræðina sem sjóðurinn hefur byggt sitt starf á.

Þá má líka minna á þá miklu herferð sem háð var gegn Íbúðalánasjóði og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tók ríkan þátt í. Seðlabankinn söng með en blessunarlega var ekki meirihlutavilji fyrir málinu á Alþingi. M.ö.o. voru Sjálfstæðismenn einir um að vilja einkavæða Íbúðalánasjóð.

Til gamans fylgir hér smá klausa úr áliti sendinefndar AGS frá árinu 2006 (í lauslegri þýðingu sem finna má á vef Seðlabankans):

„Nauðsynlegt er að umbreyta Íbúðalánasjóði hið fyrsta. Könnunarviðræður eru í gangi en þeim ber að hraða eins og kostur er. Óheilbrigð samkeppni á milli bankanna og hins ríkisstyrkta Íbúðalánasjóðs hefur grafið undan áhrifamætti peningastefunnar, aukið ójafnvægið í hagkerfinu að nauðsynjalausu og ógnað fjármálastöðugleika. Í nútíma iðnvæddu hagkerfi eins og á Íslandi þar sem eru samkeppnisfær einkarekin fjármálafyrirtæki á heimsvísu er engin þörf fyrir viðamikla þátttöku hins opinbera á húsnæðislánamarkaði. Breyting Íbúðalánasjóðs í einkarekna heildsölufjármálastofnun myndi varðveita mikilvæga stærða hagkvæmni í fjármögnun á húsnæðislánum. Reynslan erlendis frá hefur sýnt að mögulegt er að ná fram félagslegum markmiðum um tryggan aðgang að húsnæðislánum með skilvirkari og sértækari opinberum aðgerðum.“

Prev PostEngin skemmtilesning
Next PostFjármálagaldrar til sölu