Ferðast með ung börn

Birtist á túrista.is 2. mars 2023

igum við að taka bílstólinn með? Hvernig kerru er best að taka? Eru moskítóflugur á staðnum? Hvað með ferðarúmið og ferðapúðann og ferða-allt-hitt sem við keyptum eða gætum keypt?

Að halda á litlu barni er alltaf jafn sérstakt, það gleymist svo hratt hversu lítil börn geta verið á fyrstu vikunum og mánuðunum. Að pakka í ferðatösku fyrir ungbarn er að minnsta kosti jafn sérstakt: hvernig getur svona mikið af dóti fylgt jafn lítilli mannveru? Þumalputtareglan virðist vera að því minna sem barnið er, þeim mun meira fylgir því! Skott á venjulegum bíl dugar tæplega fyrir slíkan farangur og þess vegna vandast málin sérstaklega þegar farið er með ungbarn í flugvél, að ég tali ekki um til framandi staða. 

Þegar við ákváðum að fara til Tælands með tvö ung börn: átta mánaða og fimm ára, vissi ég að það gæti verið ákveðin áskorun að pakka. Svo ég hringdi í vini sem höfðu farið í sambærilegt ferðalag. En viti menn, þau mundu bara ekki neitt hvernig þau leystu úr öllum þessum álitaefnum sem upp koma við skipulagningu ferðalags! Þetta er svo sem ekkert nýtt: foreldrar ungra barna muna aldrei neitt, heldur ekki það sem þau eru sannfærð um að þau muni muna um aldur og ævi. Hér er því brugðið á það ráð að skrifa niður það sem gott er að muna fyrir ferðalög með ung börn á framandi slóðum. Og kannski getur það orðið öðrum til gagns. Þessi samantekt er byggð á okkar ferðalagi og okkar reynslu og um hana gildir að nota það sem virkar fyrir þig en láta annað liggja á milli hluta.

1. Mesti höfuðverkurinn: bílstóll

Það þarf ekki að ferðast langt með ung börn til að glíma við höfuðverk höfuðverkjanna: öryggi í bílferðum. Einhvern tímann vildi ég panta leigubíl með bílstól í Belgíu og var þá tjáð að lítil börn ættu bara að sitja í fanginu á mömmu sinni. Málin vandast enn frekar á fjarlægari slóðum þar sem bílstólar kunna að vera sjaldséðir. 

Til að tryggja að börn ferðist ekkert í bíl án öryggisbúnaðar getur verið freistandi að leigja bílaleigubíl og koma með eigin bílstóla eða leigja þá. Þetta hentar þó ekki í öllum ferðalögum og getur að auki ýtt undir frekari ferðalög í bíl, sem eru hættulegri en ýmsir aðrir samgöngumátar, ekki síst ef ökumennirnir eru á ókunnugum slóðum. 

Barnastóll

Fyrir ferðalag er best að kynna sér reglur um bílstólanotkun á áfangastaðnum. Ekki eru nærri öll lönd sem krefjast bílstólanotkunar fyrir börn og þau sem gera það framfylgja slíkri skyldu ekkert endilega. Í Tælandi eiga börn lögum samkvæmt að sitja í bílstólum og allir bílar eiga að vera með sætisbelti. Við ákváðum því að ferðast með ungbarnastól fyrir litla barnið. Vandinn var að mjög oft voru bara tveggja punkta belti í þeim bílum sem við ferðuðumst með og stundum voru þau svo lítið notuð að það var ógerningur að þrengja þau eða víkka, það var eins og þau væru ryðguð föst. Skilningur bílstjóra á þörf okkar fyrir þriggja punkta belti var lítill, enda venjan að tælensk börn sitji í fangi foreldra sinna. Einu sinni bókuðum við bílstól með bíl sem við pöntuðum og þá var stóllinn framvísandi. Við tókum stundum slaginn og festum barnið í framsætið þar sem var þriggja punkta belti. Í því fólst ákveðin skemmtun þar sem barnið orgar svakalega í bíl og það er ekki á neinn bílstjóra leggjandi að hafa það sér við hlið! Þetta var jafnvægislist og oft þurftum við að anda ofan í maga og sætta okkur við takmarkanirnar sem okkur voru settar. 

Fjör í túktúk

Við ferðuðumst líka stundum í túktúkum og viðlíka farartækjum. Þá höfðum við barnið alltaf í magapoka og gættum að það sneri að okkur með sem mestan stuðning við háls og höfuð til að draga úr hættu á meiðslum við snögghemlun. Þessi farartæki fara hægar yfir og ekki út á hraðbrautir, sem veitti ákveðna hugarró, en auðvitað er þessi ferðamáti fjarri því að teljast ásættanlegur í íslensku samhengi.

Eftir ítarlega umhugsun ákváðum við að ferðast ekki með sessu með baki fyrir fimm ára barnið. Þetta var rétt ákvörðun, enda mjög sjaldan sem hún hefði hentað. Við urðum okkur úti um uppblásanlega sessu sem tryggir rétta staðsetningu þriggja punkta öryggisbeltis, þótt enginn vörn sé fyrir höfuð og háls. Slíkar sessur á þó ekki að nota með tveggja punkta belti. Þá var ekkert annað að gera en að reyna að spenna barnið eins vel niður og mögulegt var. 

Gátlisti 
Skoða reglur um bílstólanotkun
Bílstóll

2. Burðarpoki og kerra

Á ferðalagi með ungbörn er burðarpoki nauðsynlegur. Best er að eiga poka sem býður upp á að barnið snúi annað hvort fram eða aftur og að helst sé hægt að setja það líka á bakið. Að bera barn á bakinu er miklu auðveldara til lengri tíma en að hafa það framan á sér. Börn verða að geta snúið sér að foreldri sínu til að hvíla sig á áreitinu og það er sérstaklega gott ef pokinn er með ábreiðu sem má draga yfir og vernda barnið fyrir sól og sjónrænu áreiti. Magapoki gagnast líka þar sem kerrur komast ekki en í mörgum löndum getur verið mjög þreytandi að ýta kerru á undan sér eftir misgóðum gangstéttum og í skoðunarferðum sem kalla á tröppugang. 

Í markaðsferð á matreiðslunámskeiði

Engu að síður er gott að vera með kerru og ef tvö börn eru með í för getur það stærra hvílt sig í kerrunni. Kerrur sem hægt er að taka sem handfarangur í flug eru sérstaklega handhægar en þær eru til frá helstu framleiðendum. Best er að velja kerru sem hægt er að festa bílstólinn á, ef hann er með í för, og þá þarf ekki að halda á honum sérstaklega.

Mörg flugfélög bjóða upp á að taka ungbarnabílstóla með um borð ef keypt er sæti fyrir barnið eða ef það er laust sæti. Sú sem þetta ritar mælir alls ekki með því nema barninu þyki sérstaklega notalegt að sitja í ungbarnabílstólnum, að öðrum kosti eykur það aðallega á vandræðaganginn við að koma sér inn og út úr vélinni. 

Gátlisti
Burðarpoki
Kerra sem má taka í handfarangur
Kerrufestingar fyrir bílstól

3. Að velja töskur

Hvernig er best að pakka? Það fer auðvitað eftir eðli ferðalagsins. Ef pakkað er til að vera í bíl á eigin vegum er aðalatriðið að töskur sem verða fyrir valinu komist fyrir í skottinu ásamt öðrum fylgihlutum. Ef ferðalagið er með þeim hætti að fjölskyldan er mikið á ferðinni er mikilvægt að huga að því að hægt sé að komast inn og út með farangurinn í einni ferð. Við völdum að vera með eina stóra ferðatösku á hjólum og einn stóran bakpoka. Annað foreldrið gat þá verið með bakpokann og keyrt kerruna og hitt foreldrið dregið töskuna og borið handfarangursbakpoka og aðra pinkla eftir því sem á þurfti að halda. Í handfarangri vorum við með daggöngubakpoka sem gat þá rúmað allt það helsta.

Farangur

Eitt ber að varast og það er að vera með of marga pinkla með sér. Bæði er martröð að þvælast með þá milli staða og meiri hætta á að einhver pinkillinn týnist. Hins vegar er mjög sniðugt að pakka í smærri töskur, plastpoka eða ferðatöskupoka og setja ofan í stærri tösku. Þá verður auðveldara að halda utan um farangurinn á ferðalagi og á gististöðum og fljótlegra að pakka að nýju. 

Gátlisti
Velja ferðatöskur
Pakka í smærri töskur eða poka 

4. Sólarvörn og strandferðir 

Fyrir okkur sem félagsmótuðumst á 9. og 10. áratugnum þykir frekar jákvætt að ná sér í smá lit í sólinni. Og mikið sem það er yndislegt fyrir börnin okkar að fá að vera léttklædd í hitanum! Hér kemur því leiðinlega týpan: ung börn eiga ekki að vera í beinni sól. Sólin er nefnilega mjög hættuleg og húð ungra barna er sérstaklega viðkvæm. „Dætur þínar eiga að vera alveg jafnhvítar þegar þær koma heim og þegar þið fóruð af stað,“ sagði húðlæknir við mig aðvarandi. Ef barnið er yngra en tveggja ára er best að forðast beint sólarljós alfarið. Það er gert með því að hafa barnið alklætt og í kerrunni eða á göngu í burðarpoka er gott að vera líka með sólhlíf. Auðvitað er þetta ekki algilt og foreldrar þurfa að ákveða hversu langt þeir vilja ganga. En við fórum þessa leið og litum svo á að þótt barninu væri heitt þá væri minni hætta af því en geislum sólarinnar. Eldri börn geta verið léttklæddari en þá alltaf með sólarvörn og sólhatt og ekki í beinu sólarljósi allan daginn. Best er að eiga sundgalla sem eru síðerma og skósíðir en þeir eru ekki á hverju strái og þá þarf að láta stutterma sundgalla nægja. Þá er einfaldast að kaupa sólarvörn á Íslandi þar sem úrvalið kann að vera minna á ferðalaginu. Við kaupum helst svansmerktar sólarvarnir, sem eru þá eiturefnalausar. Húðlæknir mælti með sólarvörn frá merkinu La Roche-Posay og sagði þær langbestar fyrir börn. Það að sólarvörn skilji eftir sig hvíta bletti er beinlínis æskilegt og til marks um að hún sé betri en ella. Börn eiga að vera með vörn sem er SPF50+.

Halla með börnum
Halla og dæturnar

Ef siglingar eru á dagskránni getur verið ástæða til að ferðast með björgunarvesti sem henta ungum börnum. Björgunarvesti fyrir ósynd börn þurfa að vera með sérstökum stuðningi fyrir höfuðið til að halda höfðinu uppi og þau þurfa að vera með klofbandi til að tryggja að barnið renni ekki úr vestinu. Þessi búnaður er ekki endilega staðalbúnaður í bátum á fjarlægum slóðum. Við sigldum í öldugangi í litlum bát og hefðum eflaust fengið taugaáfall ef ekki hefði verið fyrir björgunarvestin sem báðum börnunum var pakkað í.

Gátlisti
Sólarvörn 
Sólhlíf
Björgunarvesti

5. Moskítóflugur og önnur óværa

Moskítóflugur geta verið þreytandi, en bit þeirra geta líka verið hættuleg. Við fáum ekki öll ofnæmisviðbrögð af moskítóbitum. Þess vegna er ekki hægt að segja með vissu að þau okkar sem fá ekki rauð útbrot séum aldrei bitin, þótt flugurnar virðist vissulega sólgnari í sumar blóðtýpur en aðrar!

Fyrir ferðalag þarf að kynna sér hættuna á sjúkdómum sem moskítóflugur geta borið með sér. Malaría og Dengue fever eru algengastir en það eru líka fleiri sjúkdómar sem þarf að huga að á ákveðnum svæðum. Almennt er gott að forðast moskítóbit en sé einhver hætta á sjúkdómum er sérstaklega áríðandi að reyna með öllum leiðum að koma í veg fyrir bit. Á háhættusvæðum getur þurft að taka fyrirbyggjandi malaríulyf og þau eiga að vera í lagi fyrir börn sem eru þyngri en 5 kg. Á slíkum svæðum er líka mikilvægt að sofa undir moskítóneti og grípa til allra annarra ráðstafana til að draga úr líkum á biti. 

Moskítóflugur geta bitið allan daginn og moskítóflugur sem bera Dengue fever bíta til dæmis á daginn, ekki á kvöldin. Almennt eru moskítóflugur þó svæsnastar í ljósaskiptunum. Þá er æskilegast að klæða börnin (og sjálfa sig) í síðbuxur, síðerma bol og sokka eða skó. Ljósir litir eru taldir betri til að halda flugunum frá. Síðan má setja moskítófælur á fötin til að minnka líkur á að flugurnar bíti í gegn. Þá er gott að sofa í náttfötum og með viftu eða loftkælingu í gangi til að draga úr líkum á að flugurnar ráðist til atlögu þegar við sofum sætum svefni. 

Tæland - Halla
Dagur á ströndinni

Að velja flugna- og skordýrafælu getur líka verið snúið. Deilt er um virkni náttúrulegra flugnafælna en á hinn bóginn er eðlilegt að hika við að bera eiturefni á húð barna sinna. Flugnafælur sem innihalda DEET eru almennt taldar hafa besta virkni til að fæla moskítóflugur í burtu. DEET var þróað af bandaríska hernum á fimmta áratug síðustu aldar og er í minni styrkleika talið í lagi fyrir ungbörn frá tveggja mánaða aldri. Á hinn bóginn hafa verið ýmsar áhyggjur af því að DEET geti verið skaðlegt. Sjálf myndi ég alltaf nota DEET á svæðum þar sem hætta er mikil á sjúkdómum af moskítóflugum, en halda mig við önnur og vægari efni á svæðum þar sem slík hætta er lítil eða engin. Á ungbörn myndi ég láta nægja að setja efnið á föt barnanna, enda þau svo sem meira eða minna klædd frá toppi til táar. 

Í apótekunum í Tælandi var mælt með sítrónugrasolíu fyrir ungbörn og við notuðum hana óspart á föt, kerruna og burðarpokann. Við keyptum líka fyrir ferðina einn stauk af Incognito flugnafælu sem er eiturefnalaus og hefur gefið góða raun gegn moskítóflugum og annarri óværu. Ég myndi verða mér úti um meira af henni fyrir næsta ferðalag, en hún fæst því miður ekki á Íslandi. Aðalatriðið er að gæta að því að bera vörn nógu oft á og fara eftir leiðbeiningum. Þær varnir sem má nota á börn duga yfirleitt ekki lengur en 3-4 klukkustundir. Einnig eru til klemmur, armbönd og ýmislegt fleira sem gefur frá sér lykt til varnar flugum. 

Ef börnin eru bitin er samt líka gott að muna að það er ekki þar með sagt að þau veikist alvarlega! Mestu óþægindin geta verið af kláða. Til eru smyrsl sem má nota á ungbörn og Tiger-balm getur líka dregið úr kláða en hann má nota á börn yfir tveggja ára aldri. Einnig eru til sérstakir plástrar til að setja á bit sem bæði draga úr kláða og koma í veg fyrir að börn klóri sér í bitunum. Loks má nefna að ofnæmislyf geta verið hjálpleg og fyrir þau allra yngstu mætti nota paracetamol ef þau eru illa haldin. 

Gátlisti
Moskítófæla
Smyrsl / plástrar á moskítóbit
Ofnæmislyf
Ljós föt 

6. Lyf og læknisþjónusta

Fyrir ferðalag á framandi slóðir er gott að kynna sér aðgengi að læknisþjónustu og passa upp á að vera með góðar ferðatryggingar, til dæmis í gegnum kreditkort sem flugið er greitt með. Við völdum að vera ekki á mjög litlum eyjum við Tæland vegna fjarlægðar við spítala. Við þurftum einu sinni að leita til læknis með ungbarnið og það gekk ljómandi vel. Þá fengum við góða og faglega þjónustu í apótekum. Almennt er gott að muna að læknisþjónusta er aðgengileg í velflestum löndum og án efa í öllum ferðamannalöndum. Það að læknisþjónusta sé veitt af einkaaðilum er ekki endilega ávísun á að hún sé betri en opinber þjónusta. 

Í einhverjum ferðaráðum er lagt til að ferðast með sýklalyf meðferðis til vonar og vara. Við ákváðum að fylgja ekki þessum ráðum, enda hæpið að við færum að greina okkur sjálf eða börnin með sýkingar og velja síðan sýklalyf til að takast á við þær. Enda kom í ljós að væri um sýkingu að ræða var hægur leikur að fá bæði greiningu og lyf hjá lækni. Þá voru verkjalyf fyrir bæði börn og fullorðna auðfundin, en það er samt gott að hafa með paracetamol fyrir börn, ef á þarf að halda fjarri apótekum eða utan opnunartíma þeirra. Við tókum fljótandi paracetamol með í flug til vonar og vara og þurftum einu sinni að nota það. Einnig er gott að vera með saltvantsdropa í flugi. Ungbörn eru með þröngar ennis- og kinnholur og það þarf ekki miklar stíflur til að þrýstingur í flugi geti reynst þeim sársaukafullur. 

Gátlisti
Ferðatryggingar
Athuga læknisþjónustu á áfangastað
Verkjalyf 
Saltvantsdopar

7. Fatnaður og bleyjur 

Það er ekkert einfalt svar við þvíhversu mikið af fötum þarf að hafa með sér. Eitt sumarfríið tók ég þrennar buxur á ungbarnið og það var feykinóg. Nokkrum mánuðum síðar endurtók ég leikinn en það var alls ekki nóg, enda hún farin á skríða um skítug gólf og leit alltaf út eins og óhrein skúringatuska. Það þarf því að miða þetta aðeins við barnið og hegðun þess og þarfir. Í öllu falli er mikilvægt að vera með síðbuxur og síðerma boli til að geta forðast moskítóbit í ljósaskiptunum og varið húðina gegn sólinni. Lykillinn er engu að síður að taka sem minnst og vera dugleg að þvo. Því getur verið gott að ferðast með lítinn poka af þvottaefni og jafnvel blettasápu eða gallsápu sem má nota til að taka bletti úr. Í Tælandi gátum við ýmist nýtt þvottavélar á gististað eða látið þvo af okkur, sem var mikill lúxus, en oft hef ég þvegið í höndunum á ferðalögum. Þá er kjörið að vinda tauið inni í handklæði, sem snarflýtir fyrir þurrkun! Þar sem við vorum fjögur á ferð var alveg tilefni til að þvo þvott annan hvern dag og við hefðum vel getað verið með minna af fötum með okkur, að undanskildum buxunum fyrir ungbarnið sem hefðu mátt vera fleiri! 

Lestarferð

Við tókum með okkur í kringum tuttugu bleyjur til að þurfa ekki að leita að bleyjum fyrstu dagana. Bleyjur voru á svipuðu verði og á Íslandi en aðeins voru til bleyjubuxur sem voru frekar þunglamalegar. Hefðum við haft pláss hefði því verið fínt að taka meira með, en hinar dugðu alveg. 

Gátlisti
Síðbuxur og síðerma bolir
Þvottaefni
Bleyjur
Nóg af fötum – en ekki of mikið! 

8. Langar flugferðir

Langar flugferðir eru ekki eftirlæti neins og allra síst með ung börn með í för. En flugferðir líða á endanum og það er ekkert að gera annað en að nota allar leiðir til að lifa þetta af! Í okkar tilfelli þá voru allar takmarkanir um skjátíma eldra barnsins látnar lönd og leið. Fyrir vikið fannst henni flugferðirnar alveg frábærar, hún mátti bara horfa eins og hún vildi eða þar til við tilkynntum að nú væri komin nótt og tími til að leggjast til svefns. Við keyptum uppblásinn ferðapúða til að hafa til fóta sem gerði svefnstöðuna aðeins þægilegri fyrir barnið, en rétt er að taka fram að sum flugfélög leyfa ekki svona púða. Síðan eru til ýmsir púðar sem eiga að auka á þægindi barna í flugi en það er mikilvægt að muna að það sem fer í flugið þarf að vera með í öllu ferðalaginu. 

Mörg flugfélög bjóða upp á vöggur fyrir ungbörn á langflugum og kallast þær baby bassinets á ensku. Þær þarf að panta fyrirfram og finna út úr því að sitja í réttum sætum í vélinni en oftast er aðeins hægt að nota vöggurnar í sætum upp við vegg, sem einnig eru mjög vinsæl sæti vegna aukins fótapláss. Þá eru þyngdartakmörk, oftast í kringum 10 eða 11 kg. Við reyndum að bóka vöggu en það mistókst og hefði svo sem ekki skipt öllu máli í okkar tilfelli þar sem dóttir okkar hefði tæplega fengist til að sofa annars staðar en í fangi. En fyrir börn sem fallast á að liggja fyrir getur verið ótrúlega gott að geta lagt þau niður. Við enduðum á að svæfa barnið í burðarpoka og það gerði að verkum að ég gat sofið eitthvað líka með hana framan á mér. Hafi einhvern tímann verið hömlur á brjóstagjöf að nóttu til þá voru þær fjarlægðar jafnhratt og skjátímatakmarkanirnar, sem aftur hjálpaði við að gera þetta bærilegt. Við vorum líka með heyrnahlífar sem við gátum notað til að hvíla barnið á hávaðanum í flugvélinni. Og ef barnið notar snuð, ekki gleyma að hafa þau með! Í flugtaki og lendingu er gott fyrir ung börn að vera með snuð eða vera á brjósti til að draga úr líkum á eyrnaverk við þrýstingsbreytingar. Einnig er gott að vera með eitthvert nasl fyrir börn sem eru eldri og sérstaklega ef þau hafa verið viðkvæm í eyrunum. 

Leikstofa á flugvelli

Ef flogið er langflug að degi til er gott að vera með liti, spil og bækur eða aðra afþreyingu fyrir eldri börn og einhver leikföng fyrir lítil börn. Einnig getur verið dálítið erfitt að fá útrás fyrir hreyfiþörf ungra barna sem eru farin að labba eða skríða. Við leyfðum barninu að leika sér á gólfinu í sætisröðinni á meðan annað okkar fann sér góðan stað til að standa á. Við leituðum líka uppi staði í vélinni þar sem var smá gólfpláss og leyfðum henni að hamast á gólfinu. Þá eru gönguferðir eftir flugvélaganginum valkostur fyrir gangandi börn. Ef þið fáið einhvern móral gagnvart samferðafólkinu, þá er bara að muna að þau hafa það bara nokkuð gott að geta setið barnlaus í flugvél!

Gátlisti
Púðar
Spjaldtölva með barnaefni
Heyrnatól
Bækur, litir, leikföng eða annað sem börnin geta dundað sér með
Barnamatur / nasl 
Panta baby bassinet 
Heyrnahlífar 
Snuð

9. Matur

Ein af áskorunum foreldrahlutverksins er að kenna barninu sínu að borða. Nema að börn eru misfús til að læra það! Við höfum fallið í ýmsar gryfjur, eins og að eiga í stríði við matarborðið, ætlast til alltof mikils af barninu eða að lofa stöðugt eftirmat til að halda friðinn. Þessi ráð koma því ekki endilega frá manneskju sem tekst að fara eftir þeim! En hér eru þau engu að síður: ræðið við börnin ykkar um mat áður en ferðalagið hefst, útskýrið hvernig matur verður í boði og hverjar reglurnar verða. Foreldrar sem ferðast saman ættu líka að ræða sín í milli um hvaða reglur muni gilda í ferðalaginu og reyna að útskýra þær fyrir öðrum fullorðnum sem eru með í för til að losna við óumbeðna aðstoð við mataruppeldið. Á barnið að klára matinn sinn? Fær það desert á hverjum degi? Má það panta það sem það vill á veitingastöðum eða ætlið þið að stýra því? 

Matartími

Ferðalög eru ekki endilega besti tíminn til að ástunda strangt mataruppeldi. Mér hefur fundist ganga best að hvetja dóttur mína til að smakka allan mat og ræða við hana um næringu í mat, en að pína hana ekki til að borða eitthvað sem hún segir að henni finnist ekki gott, jafnvel þótt mér finnist að henni eigi að þykja það gott! Ég reyni líka að setja ekki ábyrgðina á hana með því að hleypa henni í sætindi fyrir mat og skammast svo í henni fyrir að hafa borðað of mikið af því og neita að borða matinn sinn. Í hita getur matarlystin líka breyst og kannski eru börnin bara að segja satt þegar þau halda því fram að þau langi ekki í það sem við leggjum fyrir þau. Lykilatriði er að tryggja að börn drekki nóg. Þau munu ekki bera neinn skaða af því að borða minna en við teljum æskilegt í hverri máltíð, en vökvinn er lífsnauðsynlegur. 

Sama á við um ungbörn og í hita getur þurft að auka brjósta- og pelagjafir til að tryggja að þau fái nógan vökva. Óhætt er að segja að lang auðveldast sé að ferðast með brjóstmylkinga og setja þau á brjóst eins oft og þau óska. Það þarf að hafa aðeins meira fyrir pelagjöfum og börnum sem eru byrjuð að borða. Í flugvélum er yfirleitt lítið mál að fá allt sem þarf til pelagjafa. Á flestum hótelum og gistiheimilum er hægt að fá hraðsuðuketil eða heitt vatn en ef það er einhver óvissa er hægt að ferðast með ferðarafmagnsketil með sér. Matur getur verið aðeins flóknari. Á þeim stöðum sem við vorum í Tælandi var hvergi að finna krukkumat eða skvísur fyrir börn. Við vorum með eitthvað af skvísum með okkur fyrir fyrstu dagana en auðvitað er hálfundarlegt að ferðast með maukaða ávexti til landa sem ávextirnir koma frá. Við tókum einnig með okkur ungbarnagraut sem kom sér mjög oft vel að eiga uppi á herbergi. Yfir daginn fékk átta mánaða gamla barnið ávexti og jafnvel ávaxtasmoothie (sem við vissum reyndar ekki fyrr en í lok ferðar að voru oft blandaðir með sírópi!) Oft var hægt að kaupa kjúklingaspjót sem hún gat nagað og svo fékk hún smakk af matnum okkar. Við hættum alveg að mauka ofan í hana og það gekk ljómandi vel. Það viðurkennist hins vegar að hún fékk pottþétt of mikið salt í gegnum matinn og svo dálítið af sykri, að ekki sé minnst á MSG. Í þessu samhengi er það aðallega saltið sem þarf að hafa áhyggjur af, því í of miklu magni getur það beinlínis verið hættulegt ungum börnum. Sykur er hins vegar ekki hættulegur, en það getur hunang verið. Við höfum ekki orðið vör við að mataræðið á ferðalaginu hafi haft langvarandi áhrif á barnið, hún borðar vel og er alveg sátt við ósalta og ósæta hafragrautinn sinn!

Hafragrauturinn bíður

Annar höfuðverkur tengist hreinlæti við matargerð. Almennt er nokkuð öruggt að borða mat sem er gegnsteikur. Í flestum ferðamannalöndum er notast við vatn sem er öruggt til neyslu, þar á meðal í klakagerð, en það er alltaf visssara að nota dómgreindina og leggja mat á það hvort einhverjar líkur séu á óhreinu neysluvatni eða að klakarnir séu gerðir úr kranavatni á svæðum þar sem það er ekki drykkjarhæft. 

Gátlisti
Peli 
Barnamatur fyrir ferðalagið og fyrsta daginn
Ferðahraðsuðuketill 
Barnagrautur
Smekkur
Tala saman! 

10. Annar þarfi og óþarfi

Við tókum með okkur ýmislegt fleira. Það er frábært að ferðast með rafmagnsviftu til að festa á kerru til að minnka hitamókið. Í tilraun til að kaupa góða sóllhlíf á kerru keypti ég óvart snooze shade sem leggst alveg yfir kerruna og er hannað fyrir börn sem eru vön að taka sína lúra í myrkri. Þetta gagnaðist litla barninu ekkert mikið en stóra barnið átti til að skríða inn í kerruna og biðja um „svarta fyrir“. Þannig hvíldi hún sig á áreitinu og átti það til að steinsofna. Við tókum líka með strandtjald með UV-vörn fyrir ungbarnið og það hefði verið frábært ef hún hefði haldið sig við plan foreldranna um að vera ekki byrjuð að skríða í þessu ferðalag! En barn sem flakkar um helst ekkert inni í svona tjaldi. Loks tókum við með okkur ferðastól fyrir ungbörn sem er hægt að reyra á aðra stóla og hann gagnaðist mjög oft á stöðum sem ekki buðu upp á barnastóla. 

Gátlisti
Vifta
Strandtjald
Sólhlíf á kerru
Barnastóll 

11. Að lokum

Hægt er að kaupa endalaust af vörum sem eru sérhannaðar fyrir barnafólk á ferð og flugi. Sumar þeirra eru þannig að ef maður kynnist þeim er ekki aftur snúið. En ef maður kynnist þeim ekki, þá gengur ferðalagið nú oftast samt sem áður upp! Þegar við mættum á lestarstöð með farangurshrúgurnar okkar brosti ég oft vandræðalegra til tælenskra foreldra sem virtust alveg getað ferðast um með börnin sín án þess að þurfa að rúlla með sér heilum ósköpum af töskum og pinklum. Einhvers staðar er örugglega til meðalvegur, ég hef ekki fundið hann, en held áfram að leita.

Góða ferð! 

Prev PostFerðaþjónusta,ójöfnuður og sjálfbærni 
Next PostHúðlatt (og rauðeygt) foreldri skrifar um leikskólamál