Í DV í dag segir að ástæða þess að Jóhönnu Vilhjálmsdóttur var sagt upp störfum í Kastljósinu hafi m.a. verið sú að eiginmaður hennar, Geir Sveinsson, er á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. „Það lá fyrir, þegar ég var að taka ákvarðanir um uppsagnir einstaklinga, að ef Geir yrði á fullu fyrir flokkinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar þá yrði Jóhanna meira og minna vanhæf í þættinum,“ segir Þórhallur Gunnarsson í samtali við DV.
Vafasamur rökstuðningur
Að vísu var Jóhönnu sagt upp störfum áður en prófkjör Sjálfstæðisflokksins fór fram og þess vegna var alls óljóst hvort Geir yrði meðal frambjóðenda á listanum, en það er önnur saga. Svipuð rök hafa væntanlega verið notuð gegn Þóru Tómasdóttur en systir hennar, Sóley Tómasdóttir, er borgarfulltrúi fyrir Vinstri græn og sækist eftir 1. sæti á lista í komandi kosningum. Reyndar hafa Jóhanna og Þóra væntanlega báðar verið „meira og minna vanhæfar“ allan sinn starfsferil í Kastljósinu, enda var Sóley á lista fyrir fjórum árum og Jóhanna er dóttir Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar sem leiddi lista Sjálfstæðismanna í síðustu kosningum og er alls enginn nýgræðingur í pólitík.
Að nota ættartengsl sem rökstuðning fyrir uppsögnum er í hæsta máta vafasamt. Nóg hefur verið þrengt að tjáningarfrelsi blaðamanna svo að ekki eigi að þrengja að skyldmennum þeirra líka. Þótt færa megi rök fyrir því að Jóhanna hefði ekki átt að stýra umræðum þar sem eiginmaður hennar er þátttakandi er ekkert sem segir að hún hafi ekki verið fær um að stýra öðrum umræðum í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna. Sjálfsritskoðun er það öflugt tæki að hugsanlega hefði Jóhanna verið harðari við sjálfstæðismenn en við fulltrúa annarra flokka. Sama má segja um Þóru. Blaðamenn og þáttastjórnendur á að dæma af verkum sínum, ekki af fjölskyldutengslum.
Hver var í hvaða partíi?
Ætli yfirmenn á fjölmiðlum að hafa raunverulegar áhyggjur af tengslum fjölmiðlafólks við „valdið“ væri nær að þeir litu í eigin barm til að byrja með, enda liggur þar ákvörðunarvaldið yfir efnistökum. Hvaða tengsl eiga yfirmenn á fjölmiðlum við fyrrum framámennina í viðskiptalífinu sem hafa nú tekið þjóðina með sér í löngu og dramatísku falli? Hver eru tengsl yfirmanna á fjölmiðlum við stjórnmálaflokkana og einstaka stjórnmálamenn? Hver er vinur hvers og hverjir voru í hvaða partíum? Höfðu þessi tengsl áhrif á efnistök í aðdraganda hrunsins?
Það er löngu kominn tími til að blaðamenn rísi upp gegn þeim hömlum á tjáningarfrelsi sem þeir búa við og standi saman í stað þess að grafa hver undan öðrum. Það að láta ekki í ljós skoðun þýðir nefnilega ekki að fólk hafi ekki skoðun. Þeir sem stjórna efnistökum fjölmiðla þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum áður en þeir ráðast á almenna blaða- og fréttamenn og þáttastjórnendur, hvað þá á skyldmenni þeirra.