Birtist á Smugunni 21. október 2009
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, bar sig illa í viðtali við Fréttablaðið í gær sem slegið er upp á forsíðu. Þar kvartar hann yfir því að ríkið ætli ekki umhugsunarlaust að borga framkvæmdir við höfn fyrir álverið í Helguvík. Nú má minna á að enn hefur ekki verið tryggt fjármagn til að byggja álverið og ekki er til orka til að knýja það áfram. En það skiptir ekki máli þar syðra. Álver skal rísa og fyrir það þarf stærðarinnar höfn. Reykjanesbær, segir Árni, getur ekki borgað höfnina einn, af því að þar eru svo lágir skattar. Framkvæmdin kostar ekki nema litla tvo milljarða og Árni segist hafa haft „vilyrði“ frá forsvarsmönnum nokkurra ríkisstjórna fyrir að ríkið léti allt að milljarð af hendi. Fréttablaðið hefði kannski getað spurt Árna hvernig vilyrði lá fyrir. Eru til undirrituð plögg eða sagði Árni við Árna í kokteilboði að auðvitað myndi ríkið borga? Ríkið var svo ríkt og allt fyrir álið.
En hvert er samhengið þegar fjallað er um tvo milljarða sem Árni vill að hið opinbera noti í álvershafnarbyggingu? Jú, það er eftirfarandi:
Þetta er nefnilega samhengið og eftir allt snýst pólitík um grundvallarspurningar. Á að byggja höfn fyrir álver eða halda úti heilbrigðisþjónustu? Á að byggja höfn eða reka skóla? Á að byggja höfn eða rannsaka bankahrunið? Og þar erum Árni og ég ekki sammála.