AGS beitt enn á ný

Úr frétt á Eyjunni:

„Fjölmiðlar í Bretlandi fylgjast með framgangi Icesave-málsins á Íslandi og bíða spenntir eftir því hvort forseti Íslands staðfestir lögin um ríkisábyrgð sem Alþingi afgreiddi í vikunn. Þannig segir stórblaðið Daily Telegraph að synjun forseta myndi valda skelfilegri milliríkjadeilu Íslands og Bretlands og tefla í tvísýnu lánasamningum Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.“

Enn á ný er skýrt hvernig Bretar og Hollendingar hafa beitt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í deilunni um Icesave.  Því var oft og iðulega neitað en nú reynir enginn að halda því fram að AGS sé hlutlaus alþjóðastofnun sem ekki gangi erinda einstakra ríkja. Þessu eiga Íslendingar að mótmæla harðlega. Og almenningur á Norðurlöndunum þarf að fá að vita með hverjum ríkisstjórnir þeirra hafa staðið í málinu.

Frétt Daily Telegraph

Prev PostMargföld árslaun í styrki
Next PostHótanir á hótanir ofan