Ég er alþjóðastjórnmálafræðingur og kennari að mennt og hef unnið ýmis ólík störf. Ég var framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands frá 2020–2022 þegar Drífa Snædal gengdi embætti forseta ASÍ. Ég var aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar í tíð vinstri stjórnarinnar 2009–2013 og starfaði síðar sem ráðgjafi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í jafnréttismálum. Áður starfaði ég sem blaðamaður á Morgunblaðinu og var þingfréttaritari blaðsins um tíma. Ég bjó í London í þrjú ár og vann þá lengst af hjá breska Kvennalistanum (Women‘s Equality Party) þar sem ég leiddi stefnumótun og samstarf hreyfingarinnar. Ég hef umtalsverða reynslu af stefnumótun og pólitísku starfi. Ég hef skipulagt stórar ráðstefnur og viðburði og leitt fjölda af starfshópum. Þar að auki hef ég fengist við skrif og eftir mig liggja fjórar útgefnar bækur; tvær ljóðabækur, ein ævisaga og ein fræðibók.
Ég er fædd árið 1981 og bý í Reykjavík ásamt fjölskyldu minni.