Heyrnartól á flugi

Heimsborgarinn brá sér af landi brott um daginn, enda nauðsynlegt að hreinsa andann með dvölum í stórborgum á borð við Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir að vera mikill ferðafrömuður þá þykja Heimsborgaranum flugvellir og flugvélar með leiðinlegri fyrirbærum og hann fyllist harkalegri þrjósku gagnvart öllu reglubrjálæðinu sem á slíkum stöðum ríkir. Enn verra þykir Heimsborgaranum að vera látinn borga aukalega fyrir þjónustu og þess vegna forhertist hann þegar Icelandair buðu heyrnartól á heilar 400 krónur til að geta horft á kvikmyndir eða þætti. Heimsborgarinn hélt nú ekki. Hann gæti vel lesið sínar fínu bækur og gáfulegu erlendu tímarit.

Á bakaleiðinni tók Heimsborgarinn hins vegar eftir því að hægt er að nota hvaða heyrnartól sem er til að hlýða á afþreyingarefnið. Þá mildaðist hann allur og lét æpodinn með Víðsjá, Krossgötum og Speglinum liggja ofan í tösku en horfði þess í stað á hámenningarlegan Simpsons þátt.

Prev PostNý vefsíða
Next PostOrbis Terræ