Atvinnustefna fyrir Ísland: virðingarverð sýn sem þarf að skerpa

Stjórnvöld kynntu nýverið atvinnustefnu fyrir Ísland sem mun vera sú fyrsta sinnar tegundar. Margt í vinnunni við mótun stefnunnar var til fyrirmyndar. Samráð við hagaðila og almenning, opnir fundir og hlustun, röskleg vinnubrögð og stefnumótun sem var undirbyggð gögnum. Ísland er ekki sér á báti þegar kemur að því að setja sér atvinnustefnu, en segja má að slík stefnumótun hafi dottið úr tísku samhliða uppgangi nýfrjálshyggjunnar. Þróun alþjóðastjórnmála, loftslagsbreytingar og væringar í efnahagsmálum, jafnt innan ríkja sem í milli, hafa hins vegar hreyft við bæði ríkjum og ríkjasamböndum. Atvinnustefna er því ekki lengur hugtak sem þekkist öðru fremur í sögubókum. En þó eru uppi mjög skiptar skoðanir um æskilegt umfang slíkrar stefnumótunar, hvaða hagsmunum hún eigi að þjóna og einkum og sér í lagi hversu stórt hlutverk ríkið á leika.

Mazzucato og hvatningin til að hugsa stórt

Ein af þeim sem hafa talað hvað mest fyrir virku hlutverki hins opinbera er Mariana Mazzucato, prófessor í nýsköpunarhagfræði við University College London. Hún hefur verið kölluð til ráðgjafar víða um heim og erindið hennar er skýrt: atvinnustefna á að byggja á skýrum sameiginlegum markmiðum. Í stað þess að markaðurinn ákveði hvað hann vill gera og krefjist síðan stuðnings frá stjórnvöldum eiga lýðræðislega kjörin stjórnvöld að ákveða hverju þau vilja ná fram en láta einkageiranum eftir að finna lausnirnar. Mazzucato hefur bent á að á stríðstímum þyki þetta sjálfsagt og þar á meðal í þeim parti kalda stríðsins sem laut að því að koma manni til tunglsins. Nýsköpun í vísindum og tækni, til dæmis internetið og snertiskjáir, hafi verið drifin áfram af hinu opinbera og þannig urðu óleyst vandamál að lausnum sem hafa gerbreytt samskiptum fólks og viðskiptum um ókomna tíð.

Það var því óneitanlega frískandi að sjá Mazzucato kallaða til samtals í tengslum við atvinnustefnu á Íslandi. Hún hvatti ríkisstjórnina til að hugsa stórt, setja sér markmið og leyfa einkageiranum að spreyta sig á lausnunum. Sérstaklega varaði hún við of mikilli áherslu á hagvöxt hagvaxtarins vegna, því markmiðin eigi að vera samfélagsleg. Sé mælistiku Mazzucato beitt á hina nýju atvinnustefnu fær hún tæplega háa einkunn. Meginmarkmið stefnunnar er að „ýta undir vöxt útflutnings sem byggi á atvinnugreinum með mikla framleiðni“. Það er gott og gilt að huga að aukinni framleiðni og útflutningsatvinnuvegunum, en stefnan virðist síður hugsuð út frá heildstæðri sýn á samfélagið eða þau viðfangsefni sem hér blasa við. Þar er af nógu að taka. Gerbreyting starfa vegna nýrrar tækni er eitt dæmi, breytt aldurssamsetning þjóðarinnar er annað og  loftslagsbreytingar hið þriðja. Allt eru þetta ólíkar áskoranir sem munu geta haft gríðarleg áhrif á lífsgæði og velsæld á Íslandi.

Atvinnustefnan sem var

Þótt hér sé á ferðinni fyrsta mótaða atvinnustefnan fyrir Ísland er ekki þar með sagt að fullkomið stefnuleysi hafi einkennt þennan málaflokk. Atvinnustefna hvers tíma birtist til dæmis í því hvaða starfsemi nýtur opinberrar fyrirgreiðslu og í þeim verkefnum sem stjórnvöld setja á oddinn, hvort sem það eru fiskveiðar eða skurðgröftur, ferðaþjónusta eða nýsköpun. Þannig var það form af atvinnustefnu í lok síðustu aldar þegar ráðherrar fóru um heiminn og lofuðu stóriðjufyrirtækjum lægsta mögulega orkuverði heims og rausnarlegum skattaívilnunum ef iðjan kæmi til Íslands. Þá lágu fyrir stórtækar hugmyndir um vatnsaflsvirkjanir þvers og kruss um Ísland og umræða um ferðaþjónustu átti lítið upp á pallborðið (hver nennir svo sem að skoða fossa?). Landið var kynnt sem hreint og ægifagurt, íbúarnir vel menntaðir og eigendur margra bíla, sem þótti vert að nefna. Hér fengjust bæði kjöt- og mjólkurafurðir á heimsmælikvarða! [1]

Einn helsti afrakstur þessarar stefnu var bygging Kárahnjúkavirkjunar, sem er án efa umfangsmesta og dýrasta framkvæmd Íslandssögunnar. Eitt stærsta ósnortna víðerni Evrópu var að hluta tekið undir uppistöðulón  til að knýja álver við Reyðarfjörð. En álverið skapaði sannanlega störf, bæði innan þess og utan og fyrir leikna og lærða. Þetta gerbreytti samfélaginu fyrir austan, ungt fólk hafði að einhverju að hverfa ef það vildi snúa aftur heim. Tóm hús heyrðu smám saman sögunni til og nú er vandinn einmitt sá að húsnæði skortir. Reyndar skortir líka starfsfólk í ákveðin störf og það er löngu tímabært að skoða ofan í kjölinn heildarábatann af þessu umfangsmikla verkefni.

Hin nýja atvinnustefna hefur hvergi sagt skilið við stóriðjuna. Orkusækinn iðnaður er ein af megin stefnuáherslunum og lagt upp með að stuðla að „áframhaldandi alþjóðlega samkeppnishæfni málmframleiðenda á Íslandi“, sem er skiljanlegt í ljósi hinnar rótgrónu starfsemi álveranna og hlutdeildar áliðnaðarins í útflutningi. Hins vegar má setja spurningamerki við þörfina á áframhaldandi orkuöflun og ekki er ljóst hvort orkufrekur iðnaður eigi að njóta sérstakra ívilnana. Þar hefur orðið sú breyting á að ekki er eingöngu horft til vatnsafls heldur eru nú uppi áform um yfir fjörutíu vindorkuver vítt og breitt um landið. Öfugt við Kárahnjúkavirkjun, sem naut ríks pólitísks stuðnings fyrir austan, er víða andstaða í heimabyggð við vindorkuverin. Á Austurlandi þurfti að vega kosti af ósnortinni náttúru upp á móti aukinni atvinnustarfsemi á svæðinu. Vindorkuverin tengjast hins vegar sjaldnast raunverulegri atvinnuuppbyggingu í héraði, en hafa engu að síður í för með sér oft og tíðum óafturkræft rask á náttúru og lífríki. Engir skilmálar fylgja um notkun orkunnar, hún getur farið í gagnaver í öðrum landshluta, en þau krefjast orku mun fremur en starfa. Enn fremur er mikilvægum spurningum ósvarað um áhrif vindorkuveranna og áframhaldandi uppbyggingu orkufreks iðnaðar á orkuverð til almennings, en orkuverð hefur farið hækkandi og hefur verið meðal þeirra þátta sem hafa keyrt upp verðbólguna.

Tækifæri í verslun og þjónustu

Við mótun atvinnustefnunnar vakti VR athygli á þeim tækifærum sem liggja í verslunar- og þjónustugreinum, en þær skila tæplega 20% af verðmætasköpun í samfélaginu og innan þeirra starfa næstum 50 þúsund manns[2]. Mörg þessara starfa eru góð, starfsfólk nýtur sveigjanleika og sjálfsforræðis, sem eru einhverjir mikilvægustu þættir góðra starfa. Enn fremur er verslun og þjónusta oft fyrsta stopp ungs fólk á vinnumarkaði. Þar leynast tækifærin, ungmenni kynnast launavinnu og læra á réttindi sín og skyldur. Á tímum þar sem atvinnuleysi fer víða vaxandi og áhyggjur eru uppi af virkni ungs fólks má ekki vanmeta þennan mikilvæga þátt atvinnugreinarinnar.

Að sama skapi er áríðandi að setja ekki öll eggin í sömu körfuna. Áfallaþol efnahagslífsins getur oltið á jafnvæginu á milli öflugra útflutningsgreina og sterks efnahags heima fyrir. Stundum þarf innlenda eftirspurn til að halda uppi hagkerfinu og hún byggir á góðum kaupmætti launafólks og sterkri millistétt. Framtíðarsýn í atvinnumálum snýst nefnilega ekki eingöngu um hagvöxt og efnahagsmál, heldur ekki síður um hvernig samfélagið mun mótast og um lífsgæði almennings til framtíðar. Atvinnustefna er líka stefna um störfin sem fólk mun vinna og menntunina og hæfnina sem það krefst. Hvað það síðastnefnda varðar gætir líka ákveðinnar þröngsýni í stefnunni og aðgerðaáætlun næsta árs. Þannig miða aðgerðir sem lúta að uppbyggingu á þekkingu og færni fyrir atvinnulíf framtíðar að miklu leyti að því að efla svokallaðar STEM-greinar, það er að segja vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði. Þetta eru sannarlega mikilvægar greinar og gott að styrkja stoðir þeirra, ekki síst þegar kemur að kennslu í grunn- og framhaldsskólum. En  Mariana Mazzucato hefur einmitt varað við ofuráherslu á STEM og þarna gætir ákveðinnar þröngsýni og gamaldags hugsunarháttar. Óhætt er að taka undir ákall Mazzucato þess efnis að nýsköpun kalli á þverfaglega nálgun og tæknileg þekking þurfi að haldast í hendur við samfélagslega þekkingu. Örar tæknibreytingar kalla líka á þverfaglega nálgun og reyna gríðarlega á það sem ætti að vera undirstaða allrar menntunar: gagnrýna hugsun.

Sýnina má skerpa

Þrátt fyrir þess annmarka atvinnustefnunnar  er virðingarvert af stjórnvöldum að setja fram sýn í atvinnu- og efnahagsmálum. Sýnina er nefnilega hægt að takast á um, skerpa og jafnvel breyta henni. Það er góð nýbreytni frá því sem áður var, að atvinnustefna mótaðist án lýðræðislegrar aðkomu og stundum í gegnum viðbrögð við þróun sem stjórnvöld höfðu ekkert haft með að gera. Við í VR munum eftir sem áður gera okkar til að tryggja að áherslur í atvinnumálum til framtíðar einkennist af traustum réttindum launafólks, réttlátum kjörum og – því sem ekki er síður mikilvægt – góðum og gefandi störfum.

Greinin birtist fyrst í Vísbendingu


[1] Hér er vísað í bæklinginn „Lowest energy prices!!“

[2] https://samradapi.island.is/api/Documents/060b17ec-e6d1-f011-9bd3-005056bcce7e og https://svth.is/wp-content/uploads/2025/09/Haustrettir-SVTH-2025-Tolurnar-tala-sinu-mali-1.pdf

Prev PostStýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú
Next PostAðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp