Eftir mig liggja fimm útgefnar bækur.
Ljóðabók sem kom út árið 2023. Útgefandi: Veröld. Bókin er fáanleg í helstu bókabúðum, í vefverslun Bjarts & Veraldar og á bókasöfnum.
Ævisaga Guðrúnar Ögmundsdóttir sem kom út árið 2010. Útgefandi: Bjartur. Bókin er m.a. fáanleg í vefverslun Bjarts og Forlagsins og á bókasöfnum.
Bók sem kom út árið 2008 og byggði á meistararitgerð minni sem ég skilaði sama ár undir yfirskriftinni Kynfast kerfi: rými kvenna í írönsku samfélagi. Bókin er ófáanleg nema hjá höfundi og á bókasöfnum.
Ljóðabók sem kom út árið 2007. Útgefandi: Nykur. Bókin fæst hjá höfundi og er einnig til á bókasöfnum.
Ljóðabók sem kom út árið 2013. Hún er fáanleg hjá höfundi og er einnig til á bókasöfnum.
Ég hef unnið útvarpsefni fyrir bæði Ríkisútvarpið og Nashville Public Radio.
Þegar ég bjó í Nashville í Bandaríkjunum frá 2013–2014 reyndi ég fyrir mér í gerð útvarpsefnis í anda NPR. Ég vann þrjú innslög fyrir útvarpsstöðina. Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu Nashville Public Radio.
Tveir þættir sem ég vann fyrir Ríkisútvarpið árið 2018. Í þeim segi ég frá reynslu minni af af því að taka þátt í stofnun kvennaframboðs í Bretlandi. Fjallað er um kúvendingarnar í breskri pólítík og tilraunir the Women’s Equality Party til að koma réttindum kvenna á hina pólitísku dagskrá í erfiðu árferði.
Fjórir þættir sem ég og Stefán Pálsson unnum fyrir Ríkisútvarpið árið 2010 í tengslum við heimsmeistaramótið í fótbolta. Þættirnir fjölluðu um fótbolta í menningarlegu, pólitísku og samfélagslegu ljósi.
Tíu þættir sem ég vann fyrir Ríkisútvarpið árið 2008 þar sem fjallað var um eitt land í hverjum þætti. Rætt var við fólk sem var frá eða hafði ferðast um viðkomandi land og aðra sem höfðu sérþekkingu á landinu eða svæðinu. Þættirnir voru með svipuðu sniði og þættir sem ég vann fyrir sjónvarpsstöðina NFS undir yfirskriftinni Þetta fólk.